Sunday, June 04, 2006

Jahér, tíminn líður...

Sæl öll. Ég get svo svarið það, ég hef ekki kíkt á þessa síðu síðan í haust, bara steingleymdi henni. Biðst innilega afsökunar Helena, ég hefði getað bent þér á hvaða bækur ég hef verið að kenna. Segi þér það bara núna! :) Þar sem að ég tók við kennslunni eftir að 1,5 vika hafði liðið frá skólasetningunni, ákvað ég að halda áfram með þær bækur sem afleysingakennarinn hafði látið nemendurna fá, en það voru Network bækurnar. Þær eru ágætar, en pínu ruglingslegar. Við vorum hins vegar að fá sýnishorn af bókum frá Námsgagnastofnun sem heita Matrix, student's book og verkefnabók. Þetta eru snilldar bækur vegna þess hvernig þær eru settar upp. Það er alltaf heil opna í einu fyrir lestur og orðaforða, heil opna fyrir hlustun, málfræði o.s.frv. Ég hefði ekki getað skipulagt svona bækur betur sjálf. Þær koma að vísu ekki fyrr en einhverntímann í sumar, og þar sem ég geri mér ekki alveg grein fyrir hvaða aldurshóp þær eru fyrir, mun ég nota þær sem supplement efni í bili, því ég þarf að panta allt námsefni í næstu viku.

En, rosaleg er gaman að vera kennari! Ég hlakka til að byrja aftur næsta haust. Þá mun ég alfarið sjá um tónmenntakennsluna í skólanum, fyrir utan að halda áfram að vera bekkjarkennari fyrir bekkinn minn, sem verður 8.-9. Spennandi:) Annars er saga að segja frá því að Ellen Kristjáns og Eyþór maður hennar komu og skoðuðu Suðurhlíðarskóla um daginn. Mér skilst að þau hafi sérstaklega spurt hvernig tónmenntakennslan væri í skólanum. Eins gott að standa sig vel!!

Vona að þið séuð öll hress eftir veturinn. Heyrumst (eða skrifumst?)

Monday, May 29, 2006

Að setja mig aftur í gírinn!

Ásdís hér.
Gaman að sá nýjan póst hér. Kristjana, ekki er ég hissa á að þú sért vinsæl!
Annars er ég að byrja að kenna í haust eftir fæðingarorlof. Fer í hlutastarf í MH því ég er haldin aðskilnaðarkvíða frá litla kallinum mínum. ;) Annars var ég eitthvað að reyna að hita upp fyrir kennslu...ætlaði að kíkja í ferilmöppuna...nema hvað...gleymdi henni í Odda. Erðettekki týpískt ég?
Verð svo að leyfa ykkur að sjá snáðann og smelli einni mynd með. Við familían fórum á ströndina núna í maí. Hann er orðin 6 og hálfs mánaða.

Wednesday, August 31, 2005

Maður er að komast í gírinn!

Nú er maður farinn að komast í gírinn! Ég er loksins farinn að þekkja nöfn meirihluta nemenda minna (ætli ég þekki ekki svona 100-120 af 170). Ég er líka að komast í gang í undirbúningi og performans, þ.a. núna er maður að venjast því að standa frammi fyrir þessum krökkum.
Ég hef tekið þann pól í hæðina að undirbúa kennsluna í skólanum frekar en að taka vinnuna með heim, og hef verið að koma heim á milli 5 og 7 hingað til. Ég verð þó að játa að ég stytti mér stundum leið, og er kannski ekki alltaf með faglegheitin í fyrirrúmi.
Hvernig gengur ykkur? Það væri gaman að heyra hvernig ykkur hefur gengið að hefja kennsluferilinn, hvað hefur komið á óvart o.s.frv. Ef þið eruð ekki alveg að drukkna í kennslunni...

kveðja,
Sigurður Páll

Wednesday, July 20, 2005

Lífið og tilveran

Sælt veri fólkið :)

Jæja, þetta er alveg mjög skemmtilegt sumar, náttúrulega dálítið mikið frábrugðið öðrum sumrum þar sem það er ekki á hverju sumri sem maður giftir sig. Þetta gengur allt vel, og spennan liggur í loftinu.

Ég er sem sagt komin með um 65% vinnu í Suðurhlíðaskóla sem bekkjarkennari í 7. og 8. bekk. Ég kenni þeim ensku, íslensku, tölvufræði og lífsleikni. Þar að auki kenni ég 9. og 10. bekk ensku. Skólastýran lagði svolítið hart að mér að kenna bekknum mínum samfélagsfræði, en ég kom mér undan því. Ég var ekki róleg yfir þessu og eftir að hafa rætt við tilvonandi tengdapabba minn sem hefur þetta sem sérgrein í Réttarholtsskólaog fengið smá panik í kjölfarið ákvað ég að hætta við. Ég er ekkert smá fegin því samt, því ég veit að ég treysti mér í hin fögin.

Gangi ykkur öllum rosalega vel í ykkar!
Gaman að lesa fréttirnar frá ykkur.

Kveðja,
Ólöf Inger.

Monday, July 11, 2005

Of mikil vinna?

Ég er með smá fiðring í maganum þessa dagana. Er nefnilega að fara að kenna 28 tíma á viku (tæp 120% kennsla) í vetur, og ekkert af því er efnið sem ég kenndi síðasta vetur. Ég mun sem sagt kenna einum 3. bekk í máladeild, tveimur 3. bekkjum í stærðfræðideild og þremur 5. bekkjum í stærðfræðideild. Þá mun ég líka kenna helminginn af kvikmyndagerð sem er valfag í 6. bekk.
Sem sagt, miklu meiri kennsla en ég bjóst við. En ég held nú samt að þetta bjargist alveg. Ég þarf þá bara að skipuleggja mig betur en oft áður (t.d. fyrravetur).

Annars hefur nú ekki verið mikið "action" á þessu bloggi okkar. Ætli við séum ekki aðeins að hvíla okkur á fræðinni fram á haust. Ég vona a.m.k. að þetta blogg verði vettvangur umræðna í vetur, þegar við erum komin af stað í kennslunni (eða frekara námi).

kveðja,
Sigurður Páll

Monday, June 20, 2005

Fjögurra klukkustunda gufubað með sveittum prófessorum í baðsloppum (eða útskrift)...

Jæja, hverjir ætla svo að mæta á útskriftina?
Og ætla einhverjir á djammið til þess að halda upp á prófskírteinið?
Ef ég aðeins kynni að setja upp svona skoðanakönnun á blogginu...
Annars reikna ég fastlega með að mæta á útskriftina og er að gæla við að helga kvöldið Bakkusi.

Sigurður Páll

Monday, June 06, 2005

Sótti um leyfisbréf í morgun

Ég tók mig til og sótti um leyfisbréf í morgun. Ég var alveg á báðum áttum hvort ég ætti að sækja um leyfi í grunnskóla (til hvers að eyða 5500 kr. sem er óvíst að nýtist manni?) en gerði það nú samt. Þess er nú ekki langt að bíða að maður verði löggiltur framhaldsskólakennari!
Eru einhverjir fleiri farnir að ná sér í starfsleyfi?

kveðja,
Sigurður Páll