Saturday, May 28, 2005

Amma gamla

Sæl og blessuð og takk fyrir þráðin og frábært parý!
Ég er komin frá ömmu gömlu í Danmörku og hustaði meðal annars (kellan talar fram úr hófi) á það hvernig hún lærði íslensku. Það var áhugavert fyrir tungumálakennarann mig. Það fyrsta sem stríðinn vinur afa kenndi henni að segja áður en hún kom til landsins í fyrsta sinn var "komdu sæl tengdamóðir mín, hann Alli er búin að barna mig". Hún hélt að hún væri bara að segja hæ við tengdamóðurina sem hún var að hitta í fyrsta skipti. Afa var víst EKKI skemmt! Hún var með dansk-íslenska orðabók með sér og fletti óspart og reyndi svo að bera fram. Svo sagði hún að það sem hefði hjálpað sér mest var að þora bara að byrja að tala og líka að krakkarnir á bænum voru dugleg að leiðrétta. Henni lá mikið á að læra að tala enda fór afi með hana í torfbæ innst í Eyjafirði þar sem enginn talaði stakt orð í neinu máli fyrir utan ástkæra móðurmálið. Hún talar enn frábæra íslensku, þó svo að það séu einhver 30 ár síðan hún flutti aftur út.
Smá tungumálasaga úr familíunni :)
Ásdís

0 Comments:

Post a Comment

<< Home