Saturday, May 28, 2005

Amma gamla

Sæl og blessuð og takk fyrir þráðin og frábært parý!
Ég er komin frá ömmu gömlu í Danmörku og hustaði meðal annars (kellan talar fram úr hófi) á það hvernig hún lærði íslensku. Það var áhugavert fyrir tungumálakennarann mig. Það fyrsta sem stríðinn vinur afa kenndi henni að segja áður en hún kom til landsins í fyrsta sinn var "komdu sæl tengdamóðir mín, hann Alli er búin að barna mig". Hún hélt að hún væri bara að segja hæ við tengdamóðurina sem hún var að hitta í fyrsta skipti. Afa var víst EKKI skemmt! Hún var með dansk-íslenska orðabók með sér og fletti óspart og reyndi svo að bera fram. Svo sagði hún að það sem hefði hjálpað sér mest var að þora bara að byrja að tala og líka að krakkarnir á bænum voru dugleg að leiðrétta. Henni lá mikið á að læra að tala enda fór afi með hana í torfbæ innst í Eyjafirði þar sem enginn talaði stakt orð í neinu máli fyrir utan ástkæra móðurmálið. Hún talar enn frábæra íslensku, þó svo að það séu einhver 30 ár síðan hún flutti aftur út.
Smá tungumálasaga úr familíunni :)
Ásdís

Wednesday, May 25, 2005

Til hamingju með spjallsiðuna, kæru felagar!

Ég vil þakka Sigurði innilega fyrir frumkvæðið að þessari síðu. Svo vil ég þakka honum, Rakel og Heiðu fyrir frumkvæði og undirbúning lokahófsins. Það var ekkert smá skemmtilegt og fékk mig til að hugsa þvílík synd það hefði verið að hafa ekki hist oftar í vetur. En svona er það. Vonandi gengur vel að halda þessari síðu lifandi og hittast aftur.

Ég var að dansa salsa í kvöld og ætla í bólið, þreytt og sæl.

góða nótt,

ykkar fyrrverandi bekkjarsystir, María

Umræðuþráður nýrra tungumálakennara verður að veruleika

Sæl öll

Eigum við ekki að reyna að halda sambandi hérna inni. Við getum haft þetta lokað (bara fyrir okkur), og rætt um allt milli himins og jarðar: kennarastarfið, meistaranámið í kennslufræðinni og svo framvegis. Svo getur þetta líka orðið ágætur grátmúr þegar illa gengur í kennslunni, við getum létt af okkur og leitað ráða.
Ég vona að sem flestir láti heyra í sér.

kveðja,
Sigurður Páll